Ađalvalmynd

smá um rafvirkju

  • Nafn: Rafvirkja
  • Netfang: thury83@msn.com
  • Atvinna: rafvirkja
  • Hjúskaparstađa: í góđu sambandi
  • Um mig: lítil stúlka sem ákvađ ađ fara í ferđ austur á land og prófa eitthvađ nýtt og til ađ klára skóla, var nemi í rafvirkjun en ţann 30 júlí varđ ljóst ađ ég yrđi rafvirkja:D og er ég mjög stolt af ţví, á ćđislegan kćrasta semheitir Ásmundur( ási) og viđ búum saman á Reyđarfirđi

Auglýsing

Textareitur

bráđum kemur enn betri tíđ međ sko blóm í haga:P

Atburđarteljari

jájá okey ţá...

20. nóvember 2008 klukkan 02:46
ég ska blogga, ekki samt vegna fjölda áskoranna heldur vegna minnar eigin samvisku, hún er allavega búin að vera að tuða eitthvað í mér. ég kem hér inn svona 2svar á dag og horfi á síðuna en geri ekki neitt, þannig að núna er komið að því. Tongue out þessir hippa lippar sem stjórna þessu blessaða landi halda að við séum heimsk ég er alveg búin að sjá það út. En málið er að the joke is on them... og þeir eru ekki að fatta það. en nóg um það, varð bara að koma þessu að;) jæja styttist í jólin ;) eftir 4 vikur nákvæmlega eða 28 daga verð ég jah reyndar farin að sofa en nýbúin að rífa upp hrúgu af jólapökkum eins og pakkaþyrst og yfirþreytukomið lítið barn, búin að borða hamborgarhrygginn hjá mömmu og jólakökuna með ís já og vera í faðmi systkina minna, kæró og móður. MIKIÐ hlakka ég til!!! Og ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, reyndar er nóg að gera hjá manni þessa dagana, er í stæ uppi á Egilsstöðum svo hitti ég eina stúlkukind sem heitir rebekka Sif svona einu sinni til 2svar í viku og dundum við okkur saman (sund, videó,baka,út að borða,rúntinn og fleira) svo er ég auðvitað að vinna vaktavinnuna mína og er ég búin að sjá það að þetta er að taka soldin tíma því svo um helgar þegar það er frí þá er maður búin að plana þær í eitthvað og eins og staðan hjá mér er núna þá er frí hjá mér helgina fyrir jól :Þ jebb, það vantar allavega ekki verkefni á mitt heimili og meira að segja rykhnoðrarnir verða stærri go stærri með hverjum deginum, með þessu áframhaldi verð ég komin með efni í góða sæng í jólapakkan handa einhverjum usss... bara ekki segja neinum frá því ;) um helgina ætlum við ási að skella okkur á Akureyri það á að vera svona jólaboð "G.Skúlasonar" það er allavega leikhús gisting og jólahlaðborð, voða flott fórum í fyrra sko líka, þannig eins gott að þeir standi sig í ár líka ;). við ætlum að kíkja í Jólabæinn og aldrei að vita nema maður fjárfesti í einhverju jóla dótaríi;) ... Í næstu viku er svo stefnan tekin suður á miðvikudag og er það svona semí planað allt saman, flatkökur á mið, vinkonu hittingur á fim og svo austur aftur á föstudagskvöld, verður stutt stopp en stopp engu að síður, ætla að reyna að versla allt sem þarf og klára bara jólin á einu bretti ... je right :S Var að muna að ég á eftir að græja öll jólakort þannig að ég mun sennilega ekki ná að græja þau fyrir sunnan :) en ég dútla þá bara við það heima í desember, man ekki hvort ég sendi kort í fyrra ef ég gerði það, þá voru þau mjög fá :S reyni að bæta úr því en ég lofa ENGU !!! jæja ætli það sé ekki nóg komið af bulli í bili
líf og fjör

Blogg

31. október 2008 klukkan 19:51
já þið lásuð rétt, það er verið að blogga á þessari síðu, ekki gerst lengi en vonandi að koma til ;) segi fínt, reyndar orðin leið á þessu blessuðu krepputali í öllum fjölmiðlum, eins og einn vinnufélagi sagði, getur ekki bara Hekla gosið eða eitthvað, þá höfum við allavega eitthvað annað að tala um, er sko ekki að grínast. Viti menn ég er bara búin með 2/3 af stærðfræði áfanga jábs þið lesið rétt ég á möguleika á að klára stærðfræðiáfanga sem ég bjóst sko alls ekki við þannig það má segja að ég sé mjög glöð með það, allavega ennþáTongue out

Við Ási settum upp gardínur um síðustu helgi, það var ágætis þolraun og eftir það tel ég okkur komast í gegnum ansi margt, ég hef svo enga þolinmæði það er alveg ótrúlegt allavega ekki á svona hluti( efni, garn) já eða handaverk eða vinnu what ever. Einn smá galli samt sem ég sé við svona gardínur, auka þvottur já og svo þarf að strauja þetta Money mouth já og eitt enn því miður þá gleymdist að fatta að það þyrfti yfir höfuð að strauja gardínurnar þannig að fyrri hlutinn var komin upp áður en það fattaðist og einhverra hluta vegna þá hafa þær ekki enn farið niður af stöngunum þannig að ég hef ekki getað straujað þær ennþá Innocent  þannig aumingja þær með pakkningabrotin ennþá á sér en það er allt í lagi það sést ekki því þessar svörtu eru fyrir framan þær Tongue out TEk það fram þetta er ekki LETI í mér sko, alls ekki þetta eru gardínurnar Innocent En þá að öðru já ég vinn ennþá fékk allavega útborgað í sem þýðir að ég hlýt að vera að vinna, vinnan fín gengur ágætlega held ég, allavega á maður að vera sáttur eða sátt núna að hafa vinnu, þannig ég er sátt.Laughing Þaðu lýður víst að jólum þannig að þið sem fáið frá mér gjafir endilega kommentið og segið mér hvað ykkur langar í jólagjöf, maður þarf víst að fara að hgua að því eins og öðru, þannig endilega KOMMENTA !!! EN eitthvað fleira æj ég veit það ekki, hef ekkert að segja nema ég ætla að fara suður í enda nóvember aðeins að kíkja og sv o skillst mér að ég þurfi að panta mér tíma í hár spa og ég held að ég sé meira að segja búin að panta Tongue outEða var það ekki Þorbjörg Winkblikk blikk hehe, já jafnvel að ég reyni að versla eitthvða eins og jólagjafir já og þá ódýrar er ég að meina, ekkert eitthvað GPS eða sjálfvirka ryksugu. jæja segi þetta fínt í bili bið að heilsa ykkur og segi góða helgi

kveðja
Rafvirkja

klukkuđ af elsku Hrönn :)

08. október 2008 klukkan 11:16
þá er best að byrja:
1. 4 störf sem ég hef unnið um ævina:
-Rafvirki
-Grillari
-Búðastelpa
-Starfsmaður á Sambýlum

2. 4 bíómyndir sem ég held uppá:
-Sódóma
-Mýrin
-James Bond allar sem ég hef séð
-Sex and the City

3. 4 staðir sem ég hef búið á:
-Undir Eyjafjöllum
-Hafnarfirði
-Vík í Mýrdal
-Egilsstaðir

4. 4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
-Danmörk/köben
-Usa/Baltimore
-Írland/Dublin
-Skotland/Glasgow

5. 4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:
-Dagvaktin
-Friends
-Sex and the City
-CSI með Grissom

6. 4 síður sem ég skoða daglega:
-Rafvirkja.bloggar.is
-mbl.is
-visir.is
-msn.com

7. fernnt matarkyns sem ég held uppá:
-kjöt í karrý
-hamborgarhryggur á jólunum
-Saltkjöt og baunir
-kjúklingur yfir höfuð:P

8. 4 bækur/blöð sem ég held mikið uppá/les oft:
-uppskriftabókin mín
-Arnaldur
-Dís
-Stærðfræðibókin mín :(

9. 4 staðir sem ég vildi vera á núna:
-Vík
-hjá mömmu
-uppi í rúmi sofandi
- Noregi( það eru allir að tala um hvað það sé gott að vera í Norge núna:P)

10. 4 bloggarar sem ég klukka:
-Mattý
-Gyða
-Klassi massi(valdi)
-Hugborg ofur bloggari ;)

Tíminn....

05. október 2008 klukkan 17:46
enimitt getur sko ekki drullxxx til þess að líða, kl hefur ekkert snúist í dag, enda ekkert að gera sísus ég gæti bara andaast úr leiðindum :Þ einmitt geðveikt þunglynd eitthvað hehe.. en tíminn er samt ekki að líða núna, er nebbilega að bíða eftir að það komi helgi, já eða föstudagur og að klukkan sé 12:00 því þá er ég uppi á héraði að bíða eftir að komast upp í hnoðdolluna og fljúga suður, mikið hlakka ég til, verður æði að hitta vinkonurnar, jah eða þær sem komast réttara sagt, og það hefur aðeins fækkaði í hópnum :/ en maður verður bara að lifa við það. annars er lítið uppi þessa dagana, var í prófi í síðustu viku :Þ gekk lala fæ vonandi úr því á þriðjudaginn, já ef tíminn ákveður að líða eitthvað. Já annars er eitthvað vesen í þessu blessaða landi, allur útlendur aur að verða búinn og ekkert hægt að gera, já eða það finnst þessum ríku, sem eru þeir sveittustu þessa dagana alveg að drulla á sig því þeir gætu tapað nokkrum milljónum já eða milljörðum, en það er þeirra mál, ekki er ég að missa mig enda á ég ekkert nema í mig og á og það er bara nóg, þarf ekkert meira, svo huhh... á þetta pakk þarna sem veit ekki aura sinna tal, núna vitið þið dagsdaglega hvernig raunveruleikinn er hér niðri á jörðinni. En ég ætla nú ekki að fara eitthvað að missa mig yfir þessu:P en já var í prófi þarna um daginn og svo er ég búin að læra að hlaða niður ;);) það er sko mesta snilld í heimi núna hleð ég bara niður endalaust já og deili ;) ekki gleyma því líka sko maður verður að gefa til að þiggja sko þannig virkar þetta, já og talandi um það, hvað viljið þið í jólagjöf?? nei bara að pæla því það fer nú að koma að líða að jólum og svona og já spurning um að fara að gera jólamatinn, SLÁTUR!!! jújú enda er allt orðið hey í harðindum og líka á jólunum :P hehe neinei, en ég er samt ekkert að grínast þetta með jólagjafirnar, maður þarf að fara að huga að þeim, enda ekki mikið um bæjarferðir fram að jólum þannig að það verður að nýta tímann vel í þau skipti sem maður kemst af bæ ;) en allavega ég er ekki að fara á hausinn, þannig þið heyrið örugglega frá mér aftur :D:D en allavega bless í bili
kveðja
Rafvirkja

sigg á rassinn!!!#$%&#

20. september 2008 klukkan 04:08
jább ég er ekki að djóka eða jú kannski, ég held samt að ég eigi eftir að fá sigg á rassinn, var að fá mér hjól og er aðeins byrjuð að hjóla, bara smá, þar sem ég hef ekki hjólað úti á götu nota bene í MÖÖÖÖRRRRG ár jább ég meina það, var oft í spinning en þau hjól fóru aldrei neitt þannig það reyndi ekkert á jafnvægið, og ég sá það alveg í gær þegar ég hjólaði í fyrsta skipti, að jafnvægisskynið var eitthvað brenglað, allavega þakka ég guði og öllum hinum fyrir að hafa leyft mér að vera ein á götunni :P hehe nei nei ekki svo hræðilegt en samt rosalegt, æfingin skapar meistarnn (vona ég)  ég var að koma frá köben annars í vikunni. fór út með mömmu, ömmu og Brynju sys voða gaman hjá okkur, versluðum og versluðum og löbbuðum strikið þvert og endilangt eins og við ættum lífið að leysa hehe. keypti mér til að mynda 3 pör af skóm, sem é veit ekki alveg hvenær ég á að nota því ég nenni aldrei að hafa til og vera öðruvísi en hversdagsleg :P þarf virkilega að gera bót á því :P svo er það stærðfræðin sem ég byrjaði í um daginn, HJÁLP!!! veit ekki alveg hvað ég var að fara út í ... en vona nú að ég fari taka mér tak og læra þetta almennilega, því ég á virkilega erfitt með að skilja þessa stærðfræði!! hey jú og svo sótti ég um aukavinnu svona í liðveislu og ég fæ að vita hvað kemur út úr því eftir helgi, vona að það gangi upp, verðu gaman að geta sitt einhverjum stundir og mér í leiðinni :D verður góð tilbreyting, þannig að það verður nóg að gera hjá mér allavega fram að áramótum ;)

Það er margt sem mín er að hugsa þessa dagana og meðal annars er það sem viðkemur einelti, því þannig er mál með vexti að í sumar þá missti góð kona sem ég þekki ,son sinn (frænda minn) , en hann tók eigið líf og var það fyrir sakir þess hvernig uppvaxtar ár hans í grunnskóla voru, hann var  lagður í einelti og það mikið og bar þess aldrei bætur blessaður, voða ljúfur og góður strákur, hann hét Lárus Stefán Þráinsson, en allavega mamma hans er núna á fullu að stofna samtök foreldra eineltisbarna og þolenda eineltis sem mér finnst mjög þarft, því lítið finnst manni vera gert í þeim málum hér á landi, því miður.  vitiði að fleiri en þið haldið hafa verið lagðir í einelti einhverntímann á lífsleiðinni og af ótrúlegasta fólki, en málið er að sá sem verður fyrir einelti býr þess aldrei bætur og segir helst aldrei frá því... sama hvernig reynt er að vinna úr því. ég ætla að setja hér inn veffangið hennar Ingu og vona að þið sem lesið síðuna kíkjið þar inn og ef þið viljið leggja hönd á plóg að þá endilega hafa samband við hana Ingu. veffangið er www.ingabaldurs.blog.is og endilega látið þetta berast ef þið vitið um einhverja sem hafa áhuga á þessu málefni sem skiptir svo marga miklu máli...

hef þetta ekki meira að sinni

Líf og fjör ;)
kveðja
Rafvirkja

Ný fćrsla

28. ágúst 2008 klukkan 12:49
já kannski komin tími á nýja færslu, þær skrifa sig víst ekki sjálfar og ég  er búin að fara svo oft inn á síðuna að núna verð ég bara að skrifa eitthvað:P já frí, já ég er í fríi núna það fer reyndar að klárast eða allavega þessi runa og svo byrjar næsta eftir 2 vikur :P ferð þá út til köben með mömmu,ömmu og sys voða gaman, hlakka allavega ýkt mikið til :P mér sýnist haustið vera á næsta leyti skólarnir byrjaðir og ég sjálf búin að skrá mig í eitt fag :S veit nú ekki alveg hvernig það fer, STÆ303 shjit ég svitna bara við tilhugsunina, en verð víst að þurrka hann og hella mér út í þetta, já ef maður ætlar í háskóla þá verður maður að kunna að reikna :S en þetta verður örugglega í lagi, ég lærði nefnilega stærðfræði í barnaskóla :P
hvað fleira er í fréttum, jú var fyrir sunnan í þessari sumarfrístörn voða gaman, bryllup og landbúnaðarsýning og heimsóknir svo fátt eitt sé nefnt.  og fríinu á undan því , æj þarna um verslunarmannahelgina já eða fyrir það þá vorum við líka fyrir sunnan já enduðum reyndar á að fara allan hringinn og fengum bara fínt veður, já er ekki rigning í Vík fínt veður !!!?? !"#$%& jú það var ljúft var reyndar hálf veik fyrrihluta þeirrar ferðar en þegar sólin fór að skína fór mín að braggast og fann orðið bragð og lykt á 4 degi :P það hlýtur að teljast nokkuð gott. :) En sumarið er búið að vera ansi fljótt að líða, búin að gera þónokkuð margt og við Ási sko saman ;) þannig það er ekki hægt að kvarta yfir aðgerðarleysi þetta árið;)
hey eitt sáuð þið imbann í gær frá sona rúmlega 4 til bara 9 eða eitthvða ég held að ég hafi bara ekki tárast jafn mikið í langan tíma, þjóðarstoltið alveg að fara með mann sko, þessir strákar eru æði, og það er búið að vera svo gaman að fylgjast með þeim, og þvílíkar framfarir hjá þeim ég sá bara heljarinnar mun á þeim, að fá þá svo heim í gær var svo gaman, ég horfði á alla beinu útsendinguna á RÚV og gat ekki stillt mig var svo glöð fyrir þeirra hönd :D :D :D :D :D
En núna ligg ég í sófanum og skrifa þetta og er eiginlega að bíða eftir að tíminn líði aðeins hraðar er nefnilega að fá gest :D jábs og næ í hann upp í Hérað á eftir, þessi gestur er svona hestur sko námshestur( var þetta ekki kúl) já var bara að klára próf áðan sem hún komst ekki í um jólin, jább þetta er hún Brynja systir sem er að mæta og grunar mig að við eigum eftir að hafa það gott yfir helgina og sprella og spila eins og okkur einum er lagið;)
jæja hef þetta ekki lengra í bili læt í mér heyra, segi ykkur hverning gengur að læra og svoleiðis :P

líf og fjör
Rafvirkja

Frí

23. júlí 2008 klukkan 10:11
frí loksins frí, geðveikt frí að frí vera frí komin frí í frí frí frí, einmitt frí, magnað frí hvað frí passar frí frí frí vel frí við frí öll frí orðin frí í frí þessari frí færslu frí Svalur en okey nóg komið, ég er samt komin í frí og í dag er fyrsti dagurinn vaknaði kl 9, burstaði, borðaði og tók af snúrunni, og þarf að setja á hana aftur, en hér er annars sól og gott veður, líklega verður heyskapur í dag og þá er honum nún að mestu lokið. Á morgun ætlum við sköturnar að skella okkur suður, samt ekki til Reykjavíkur nei heldur til Víkur !!Q!"#!"$#$&#$ Hlæjandi því þéðan að fara suður er að fara á suðurlandið sko því ég er á austurlandi, þetta eru svo mögnuð fræði ég veit :P vann í gær og je minn ég svitnaði kl 08:00 og var sveitt til 20:08 jább sem sagt allavaktina enda var ansi erfitt að koma sér úr fötum eftir vakt og að reyna að flýta sér í sturtu það var bara ekki að ganga en ég rétt náði rútunni kl korter yfir. það varð óhapp eða bilun í gærmorgun og hún kom mér til að hugsa, að oft þegar fólk sem lendir í þessum óhöppum og skemmi eitthvað að þá er farið að hugsa um hvernig eigi að að segja f´ra hvað gerðist og fólk hugsar oft að það vilji nú sjálft ekki komast í klandur, en málið er að ef fólk segir ekki bara alveg rétt frá að þá, er kannski ekki hægt að laga eð agera við búnaðinn þannig að svona óhöpp komi fyrir aftur, fólk er bara alltaf hrætt við að vera gerendur en fattar samt ekki að þó að þeir séu gerendur að þá er þetta kannski eitthvað sem ekki var auðveldlega hægt að koma í veg fyrir, því í raun var búnaðurinn ekki í lagi, en það verður samt að segja rétt frá svo hægt sé að bæta búnaðinn. Æj fólk er bara hrætt við þetta, ég varð fyrir því (ó)láni í vetur að keyra stóran krana á tjalda sem á að vera eins og veggur hjá okkur á verkstæðinu eftir þetta fór fólk að pæla hvernig hægt væri að koma í veg fyrir þetta, því ég var í raun bara að gera mína vinnu ásamt örum starfsmanni, þannig að núna getur þetta ekki gerst að krani keyri á þetta tjald og er ég eiginlega mjög fegin því að hafa gert það því úr varð bót og verður tjaldið alltaf á sínum stað núna þegar krani er keyrður undir það;) 
en hey hættum þessu vinnurausi er komin í frí, langar bara að segja öllum sem ég þekki að ég er hlakka rosa mikið til að koma suður á morgun það verður æði að hitta vini og vandamenn um helgina, Hafið það bara sem allra best og bless bless
nóg raus í bili
rafvirkja kveður með sól í huga og bros á vörSvalur

grasiđ grćnna hinu megin???

15. júlí 2008 klukkan 13:03
Nei ég held það nú ekki því samkvæmt minni sjón þá er sko grasflöturinn minn sá grænasti í götuni :P og geri aðrir betur Ullandi Ekkert smá stolt af honum, reyndar mætti alveg fara að þorna upp hérna því ég þarf að slá merkið mitt það vex bara og vex grasið hérna hehe en nóta bene sko bara hjá mérSvalur en talandi um gras þá var heyskapur hér inni í sveit í síðustu viku helv. gaman og nóg hægt að gera ekki frá því að ég hafi svitnað svolítið en það var nú bara fínt komin tími á smá átök hérna á bænum ;) Núna er legið á bæn frá morgni til kvölds um að það verði þurrkur út vikuna og helst um helgina líka, svo hægt sé að klára sem mest ef ekki allt er af heyskap áður en við förum í frí Brosandi sem er nú bara eftir rúma viku :P reyndar ekkert voðalega langt frí en rúm vika engu að síður og á sko að nýta hana vel, jah ef ég umorða þetta þá verðum við að nýta hana vel erum búin að fjárfesta nefnilega í svolítið miklu útilegu dóti að við verðum að borga það upp með því að nota það eins og vitleysingar núna í fríunum okkar. En ef ég þekki okkur rétt þá ætti það ekki að vera neitt málHlæjandi lítið meira hefur nú drifið á dagana var að vinna um helgina og er því í fríi í dag og fer á vakt annað kvöld, svo í frí á föstudagGlottandi löng helgi svo bara ein vakt eftir helgi og þá bara sumarfrí þvílíkt yndi, en jæja er að spá í að henda í jógúrtkökur bara sona til að gera eitthvað í rigningunniUllandi hafið það gott í dag og næstu daga og ég læt í mér heyra
KVeðja
Rafvirkja

RAFVIRKJA

01. júlí 2008 klukkan 10:40
jæja örlögin eru ráðin ég tek við meyjarbréfinu í haust sem staðfestir það að ég sé orðin fullgild RafvirkjaHlæjandi
mikill léttir og gleði, þegar kallinn hjá fræðsluráði las upp einkunnirnar mínar í gær Glottandi
Rafmagnsfræði og hönnun 9,7
reglugerðir og orðsendingar 8,4
meðaltal þá út úr bóklegu 9,1

iðnteikning 7,6

verklegar raflagnir 5,5
verklegar mælingar 9,0
meðaltal út úr verklegu 5,9
verklag í raflögnum 6,0

AÐALEINKUNN 7,0

já ég er sko mjög stollt af þessum áfanga og mér skilst að einhverjir fjölskyldumeðlimir séu það líkaUllandi já eða bara allor sem ég talaði við í gær Hlæjandi
nóg í bili heyri í ykkur síðar
RAFVIRKJA kveður

framtíđin í húfi

29. júní 2008 klukkan 13:59
jább, ég held að ég þurfi, róandi og mikið af því og kannski bara að hafa sjúkrabílinn tiltækan, er nefnilega að fara yfirumHissa held að dælan í mér gæti vel dælt fyrir einn góðan ptm-krana þessa stundina.ástæða þess að ég er á yfirsnúning er vegna spennings Ullandi já eða tilhugsuninni um það að framtíð mín verður ljós á morgun, jább einkunnirnar koma á morgun... hvað er ekki búið að fara í gegnum hausinn á mér, ef þetta ef hitt en ef svona og ef ekki... ég veit soldið sjúk en ég get ekki beðið þetta er næstum að verða eins og morgunin eftir verklega prófið, það var hell en allavega langaði bara að létta aðeins á mér og segja ykkur hvaða tilfinningu ég er með í maganum, hafið það gott í dag ég ætla að halda áfram að finna einhverjar róandi gleðipillur Þögull sem gröfin

Klukkan

Könnun

ćtlaru á einhvert matarkynsnámskeiđ fyrir jólin?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur